Sumarútsala
Sumarútsala
© AFP (AFP)
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí er 379,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,11% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 359,9 stig og lækkaði um 0,22% frá júní af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,4%.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,2%. Þar af voru 0,17% áhrif vegna hækkunar markaðsverðs en -0,02% vegna lækkunar raunvaxta. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,7%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,0% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,3% verðbólgu á ári. Ef húsnæði er undanskilið nemur verðbólgan 4,2%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2011, sem er 379,9 stig, gildir til verðtryggingar í september 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.501 stig fyrir september 2011.