Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% en án húsnæðis hefur hún hins vegar lækkað um 0,5% á sama tímabili. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Vísitala neysluverðs við verðlag í október er 438,5 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði. Vísitala húsnæðis án húsnæðis hefur lækkað um 0,28% og er nú 395 stig.

Kostnaður við búsetu í eigin húsnæði hækkaði milli mánaða, um 1,3% en verð á matvörum lækkaði um 1%.