Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2014 er 422,1 stig og lækkar um 0,17% frá fyrri mánuði. Ársverðbólga hækkar því um 0,2 prósentustig milli mánaða. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,3% sem jafngildir 1% verðbólgu, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar.

Án húsnæðis er vísitala neysluverðs 396,7 stig og lækkaði um 0,23% frá júni. Helsti þátturinn sem hefur áhrif á vísitölulækkun í júlí er að sumarútsölur eru víða í fullum gangi. Því lækkaði verð á fötum og skóm um 11,6%. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu hins vegar um 17%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan neysluverðs hækkað um 2,4%.