Vísitala neysluverðs í desember 2005 er 248,9 stig og hækkaði um 0,36% frá fyrra mánuði samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 232,0 stig sem merkir hækkun um 0,22% frá því í nóvember.

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 0,9% (vísitöluáhrif 0,15%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,13% og áhrif af hækkun meðalvaxta 0,02%. Verð á fötum og skóm hækkaði um 2,1% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngildir 3,3% verðbólgu á ári (1,0% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í desember 2005, sem er 248,9 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.915 stig fyrir janúar 2006.