Vísitala neysluverðs í október 2004 er 237,4 stig og hækkar um 0,76% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 229,8 stig, 0,70% hærri en í september. Verð á fatnaði og skóm hækkaði um 6,2% (vísitöluáhrif 0,33%). Þá hækkaði markaðsverð á húsnæði um 1,5% (0,20%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,2% sem jafngildir 4,9% verðbólgu á ári (3,7% án húsnæðis).