Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 115,5 stig (1996=100) í ágúst sl. og hækkaði um 0,2% frá júlí. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 128,3 stig, lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði. Frá ágúst 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 2,3% á evrusvæðinu og 3,1% á Íslandi. Þetta kemurfram í frétt Hagstofunnar.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,8% í Lettlandi og 7,2% í Ungverjalandi. Í Finnlandi mældist 0,3% verðhækkun og í Danmörku var verðbólgan 0,9%.