Vísitala neysluverðs í febrúar 2006 er 249,5 stig og lækkaði um 0,08% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 230,9 stig, lækkaði um 0,26% frá því í janúar að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar.

Ástæðuna fyrir lækkuninni má líklega helst rekja til þess að vetrarútsölur eru enn í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,9% (vísitöluáhrif -0,47%).

Verð á eigin húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 0,7% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,6% sem jafngildir 2,4% verðbólgu á ári (1,0% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í febrúar 2006, sem er 249,5 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.926 stig fyrir mars 2006.