Í janúarmánuði 2008 tók gildi breyting á tímasetningu söfnunar á verðupplýsingum fyrir vísitölu neysluverðs og á útreikningstíma vísitölunnar. Vísitalan er héðan í frá reiknuð miðað við verðlag um miðjan hvern mánuð en var áður miðuð við verðlag tvo fyrstu virka daga hvers mánaðar. Á vef Hagstofu Íslands segir að vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í miðjum janúar 2008 er 282,3 stig. Vísitalan lækkaði um 0,1% frá því í upphafi mánaðarins en hefur hækkað um 0,18% frá desember. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 251,0 stig. Hún lækkaði um 0,05% frá því í janúarbyrjun en hefur lækkað um 0,16% frá desember. Vetrarútsölur halda áfram og lækkaði verð á fötum og skóm um 5,1% frá  því í byrjun janúar (vísitöluáhrif -0,21%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,3% (-0,06%) frá mælingunni í janúarbyrjun vegna lækkunar á markaðsverði húsnæðis. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,3% (0,16%) frá því í upphafi mánaðarins. Síðastliðna tólf mánuði (miðað við verðlag í upphafi mánaðar í fyrra en um miðjan mánuð nú) hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,3%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,7% síðastliðna tólf mánuði og fastskattavísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,5% sem jafngildir 6,2% verðbólgu á ári (3,8% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í miðjum janúar 2008, 282,3 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.574 stig fyrir mars 2008.