Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,2% milli mánaða, en vísitalan er nú 127,9 stig.

Verð á innfluttu efni lækkaði um 1,4% frá síðasta mánuði sem hefur 0,3% áhrif til lækkunar. Á móti kemur til að innlent efni hækkaði um 0,3% og hafði það áhrif til hækkunar um 0,1%. Samtals lækkaði vísitalan því um 0,2%.

Á tólf mánaða tímabili hefur vísitalan hækkað um sem nemur 3,7%