Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2009 var 169,7 stig og lækkaði um 7,3% frá desember 2008.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 220,0 stig, sem er lækkun um 5,4% (vísitöluáhrif -1,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 172,2 stig, lækkaði um 17,0% (-5,0%).

Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% frá desember (0,0%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,5% (-0,6%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,1% (0,0%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 11,0% (-7,3%).

Frá janúar 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 39,2% og verðvísitala sjávarafurða um 62,7%. Á sama tíma hafa afurðir stóriðju hækkað um 31,1% en matvælaverð um 24,3%.