Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,07% í dag. Hagar hækkuðu mest eða um 1,61%, VÍS um 0,28% og Reginn um 0,07%.

Velta á hlutabréfamarkaðnum nam rúmlega 931 milljón króna og þar af námu viðskipti með bréf Regins um 435 milljónir króna.

Gengi hlutabréfa Össurar lækkaði mest í dag eða um 1,17%. Þá lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,98%, TM um 0,33% og Eimskip um 0,2%. Gengi hlutabréfa Vodafone og Marel stóðu í stað.