Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,79% í dag og endaði í 1821,43 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,14% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 0,68% í viðskiptum sem hljóða upp á 249 milljónir króna. Gengi bréfa HB Granda hækkaði þá einnig, eða um 0,56% í rúmlega 45 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 36 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,19% í viðskiptum sem hljóða upp á 1,3 milljarða króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 33,3 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Marel um 1,38% í viðskiptum upp á 619 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 250,5 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 3,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,1 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,7% í dag í 3,6 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 2,5 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 0,9 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 1,6 milljarða króna viðskiptum.