Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í byrjun janúar 2008 er 282,6 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,28% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 251,1 stig, lækkaði um 0,12% frá desember, segir í frétt Hagstofunnar.

Vetrarútsölur eru nú víða hafnar og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,1% (vísitöluáhrif -0,46%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,3% (0,25%), þar af voru 0,15% áhrif vegna hækkunar vaxta og 0,1% vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis. Gjöld tengd húsnæði hækkuðu um 8,8% (0,10%) og verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,9% (0,11%), segir í fréttinni.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,4%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,8% síðastliðna tólf mánuði og fastskattavísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,6% verðbólgu á ári (3,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2007 var 273,7 stig, 5,0% hærri en meðalvísitalan 2006. Samsvarandi breyting var 6,8% árið 2006 og 4,0% árið 2005.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis var 246,7 stig árið 2007, 2,5% hærri en árið 2006. Samsvarandi breyting var 4,8% árið 2006 og 0,9% árið 2005.

Vísitala neysluverðs í janúar 2008, sem er 282,6 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.580 stig fyrir febrúar 2008. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í miðjum mánuði verður birt þann 29. janúar. Hún mun verða endanleg vísitala fyrir janúar og gilda til verðtryggingar í mars.