Í október hækkaði launavísitalan um 0,3% frá fyrri mánuði og náði hún 588,3 stigum. Hefur hún hækkað um 10,4% síðastliðna tólf mánuði.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni , en hún tekur einnig saman vísitölu kaupmáttar launa, en hún hækkaði einnig um 0,3% í októbermánuði. Nam hún þá 137,6 stigum en síðustu tólf mánuði hefur hún hækkað um 8,5%.

„Launavísitala er verðvísitala sem byggir á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma,“ segir í frétt stofnunarinnar.

„Vísitala kaupmáttar launa byggir á launavísitölu og vísitölu neysluverðs. Almennt eykst kaupmáttur launa þegar laun hækka umfram verðlag en minnkar þegar verðbólga er meiri en launahækkanir.“