Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,3% í dag í 5,3 milljarða króna viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,3% í 3,4 milljarða króna viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 1,9 milljarða viðskiptum.

Sé horft yfir þróunina yfir mánuð hafa þessar þrjár vísitölur lítið sem ekkert breyst. Óverðtryggða vísitalan hefur lækkað um tæp 3% frá áramótum. Verðtryggða vísitalan hefur hins vegar hækkað um 5%.

Í dag voru mest viðskipti með HFF 24 og HFF 44, fyrir um einn milljarð í hvorum flokki. Mest viðskipti voru með RB19, fyrir rétt rúman milljarð, í óverðtryggðum bréfum.