Viðskiptaþáttur Viðskiptablaðsins hefur verið gerð aðgengileg á netinu og verður í framtíðinni hægt að hlusta á þættina nokkra mánuði aftur í tímann. Viðskiptaþáttur Viðskiptablaðsins er sendur út daglega á Útvarpi Sögu (99,4) á milli kl. 16 og 17. Þátturinn er síðan endurfluttur kl. 01 á næturnar.

Þátturinn hóf göngu sína í ágúst 2002 og hefur verið sendur út samfellt síðan. Þátturinn er í umsjón blaðamanna Viðskiptablaðsins.