Vegna óviðráðanlegra orsaka seinkar útkomu Viðskiptablaðsins í dag, miðvikudag, þ.e. þess hluta sem dreift er með Morgunblaðinu. Blaðið berst því til áskrifenda með Morgunblaðinu á morgun, fimmtudag. Vonir standa hins vegar til þess að sá hluti sem Íslandspóstur dreifir nái til áskrifenda í dag. Viðskiptablaðið í dag er hins vegar aðgengilegt hér á vefnum á pdf-formi.

Áskrifendur Viðskiptablaðsins eru beðnir velvirðingar á þessu.