Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,3 milljarða króna og inn fyrir 37,1 milljarð króna. Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,8 milljarða króna.

Í mars 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 4 milljarða króna á sama gengi. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Fyrstu þrjá mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 78 milljarða króna en inn fyrir 102,7 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 24,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 12,3 milljarða á sama gengi.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 12,5 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma árið áður.   Útflutningur

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 10,1 milljarði eða 11,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Sjávarafurðir voru 41% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,4% minna en á sama tíma árið áður.

Útfluttar iðnaðarvörur voru nær helmingur alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,7% meira en árið áður.

Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli.

Innflutningur

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 2,4 milljörðum eða 2,4% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Mest aukning varð í innflutningi á fólksbílum og hrá- og rekstrarvörum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingavöru.