Viðskiptahallinn minnkaði lítillega í Bretlandi í ágúst, en var þó meiri en flestir greiningaraðila höfðu spáð, segir í frétt Dow Jones.

Viðskiptahallinn nam 6,7 milljörðum punda (858 milljörðum króna), samanborið við 6,8 milljarða í júlí (871 milljarða króna.)

Greiningaraðilar höfðu spáð að viðskiptahallinn næmi 6,2 milljörðum punda.