Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 28 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins sem er aðeins um helmingur þess sem var á sama tíma í fyrra en þá var hann um 57,3 milljarðar króna. Halli var á öllum liðum viðskiptajafnaðar, vöru, þjónustu, þáttatekna og rekstrarframlaga segir í frétt Seðlabankans.

Halli á vöruskiptum var 8,1 milljarðar króna samanborið við 31,9 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Minni viðskiptahalli fyrsta ársfjórðungs skýrist að hluta til af sérstökum liðum, svo sem sölu flugvéla og hagnaðar af fjárfestingu erlendis. Batinn á þáttatekjum er rakinn til hlutdeildar Íslendinga í hagnaði erlendra fyrirtækja, en hann er færður til tekna og endurfjárfestur á sama tíma í fyrir¬tækjunum. Lítils háttar aukning varð á gjaldahlið þáttateknanna, sem á sama hátt skýrist af endurfjárfestum hagnaði erlendra aðila á Íslandi. Hins vegar var nýfjár¬festing erlendra aðila á Íslandi lítil á ársfjórðungnum.

Hreint fjárútstreymi nam 88,3 milljörðum króna á ársfjórðungnum. Bein fjárfesting innlendra aðila erlendis og kaup þeirra á erlendum skuldabréfum jukust töluvert frá síðasta ársfjórðungi 2006. Á hinn bóginn dróst bein fjárfesting erlendra aðila á Íslandi saman og sama máli gegndi um fjárfestingu þeirra í íslenskum markaðs¬skulda¬bréfum.