Viðskiptajöfnuður við útlönd var óhagstæður um 199,6 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs sem er talsvert meiri halli en á fjórðungnum á undan.

Rúmlega 33 milljarða króna afgangur var í vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd en rétt yfir 233 milljarða króna halli þáttatekna skýrir óhagstæðan viðskiptajöfnuð.

Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands en þar hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2008 og um stöðu þjóðarbúsins í lok fjórðungsins.

Þar kemur fram að halla á þáttatekjum á fjórða ársfjórðungi má að langmestu leyti rekja til taps innlendra aðila á beinni fjárfestingu erlendis og aukins vaxtakostnaðar vegna erlendra skulda.

Hreint fjárinnstreymi nam 224,8 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi. Á vef Seðlabankans kemur fram að innstreymi fjármagns upp á 542,6 milljarða skýrist helst af neikvæðri endurfjárfestingu og sölu á íslenskum félögum erlendis. Útstreymi fjármagns var 315,5 milljarðar króna sem að mestu leyti skýrist af neikvæðri endurfjárfestingu erlendra aðila á Íslandi.

Skekkjuliðurinn í ársfjórðungsuppgjörinu er neikvæður um 25 milljarða króna sem er töluvert minna en í síðasta uppgjöri.

Þá var hrein staða við útlönd neikvæð um 3.675 milljarða króna í lok fjórða ársfjórðungs og versnaði um 1.341 milljarða króna frá síðasta fjórðungi.

„Þessi þróun stafar einkum af gengislækkun krónunnar en einnig af erlendri lántöku Seðlabankans,“ segir á vef bankans.

Erlendar eignir námu 9.557 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.233 milljörðum kóna. Vert er að geta þess að inni í tölum um erlendar skuldir eru ennþá eignir og skuldir viðskiptabankanna þriggja sem nú eru í greiðslustöðvun.

Sjá nánar vef Seðlabankans en þar má einnig sá fréttina með tilheyrandi töflum.