Viðskiptajöfnuður við útlönd var óhagstæður um 56,7 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins sem er talsvert lægra en á síðasta fjórðungi samkvæmt nýjum tölum frá Seðlabanka Íslands.

Í dag verða birt á heimasíðu Seðlabanka Íslands bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fyrsta ársfjórðungi 2008 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum kemur fram að talsvert minni halli þáttatekna og á þjónustujöfnuði skýra þessa breytingu að mestu en aukinn halli af vöruviðskiptum vegur nokkuð á móti.

Þá segir að ávöxtun erlends hlutafjár í eigu Íslendinga veldur mestu um að jöfnuður þáttatekna batnaði á milli fjórðunga.

„Nokkur hækkun varð einnig á gjaldahlið þáttateknanna sem skýrist að mestu leyti af endurfjárfestum hagnaði erlendra aðila á Íslandi. Lækkun á gengi krónunnar á fyrsta ársfjórðungi hefur veruleg áhrif á flesta liði í uppgjöri greiðslujafnaðarins,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

Hreint fjárinnstreymi nam 135,3 milljörðum króna á tímabilinu. Bein fjárfesting innlendra aðila erlendis jókst um 36 milljarða króna en á síðasta fjórðungi 2007 dróst hún saman um 275 milljarða króna. Bein fjárfesting erlendra aðila á Íslandi dróst saman og sama máli gegndi um fjárfestingu þeirra í innlendum markaðsskuldabréfum.

„Skekkjuliður í ársfjórðungsuppgjörinu er fremur stór en vonir standa til að hann minnki eftir því sem nánari upplýsingar verða tiltækar. Reynsla Seðlabankans er sú að neikvæður skekkjuliður skýrist oftast af vanmati á fjármagnshreyfingum, þótt hitt þekkist einnig að síðar berist nákvæmari upplýsingar um breytingar viðskipta og tímasetningu þeirra,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

„Þessi þróun stafar einkum af veikingu gengis krónunnar, þ.e. hækkun á verði erlendra gjaldmiðla um 29,6% samkvæmt gengisskráningarvísitölu sem endurspeglast í samsvarandi hækkun stöðutalna um erlendar eignir og skuldir. Einstakar myntir, t.a.m. evra hækkuðu þó talsvert meira eða um tæplega 33%."

Erlendar eignir námu 7.758 milljarðar króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 9.970 milljarðar króna.