Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands voru fluttar út  vörur fyrir 43,2 milljarða króna á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs. Á sama tíma voru fluttar inn vörur  fyrir 54,4 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd nemur því 11,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 18,7 milljarða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 7,5 milljörðum króna skárri en á sama tíma árið áður.

Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 23,9 milljarða króna og inn fyrir 29  milljarða króna. Vöruskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 5 milljarða króna en voru óhagstæð um 8,8 milljarða fyrir ári síðan.

Verðmæti vöruútflutnings nam 6,6 milljörðum  fyrstu tvo mánuði ársins sem er 17,9% meira en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,5% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 66,9% meira en árið áður.

Fyrstu tvo mánuði ársins 2007 nam verðmæti vöruinnflutnings 0,9 milljörðum eða 1,7% minna en árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á fólksbílum og flugvélum en á móti kom aukning í innflutningi á fjárfestingarvöru.