Í nýrri skoðun Viðskiptaráðs kemur fram að traust til stjórnsýslu, stjórnvalda og Alþingis hefur beðið talsverða hnekki í því umróti sem fylgt hefur falli bankanna. Ein birtingarmynd þessarar stöðu voru háværar kröfur um gagngerar breytingar innan ríkisstjórnar og ákveðinna stofnana hins opinbera.

Þessi afstaða kom skýrt fram hjá aðildarfélögum Viðskiptaráðs í nýlegri viðhorfskönnun, en um 9 af hverjum 10 aðildarfélögum töldu nauðsynlegt að stokka upp í ríkisstjórn og gera mannabreytingar hjá Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu á þeim tíma sem könnunin var framkvæmd. Ríkjandi vantraust undanfarinna vikna og mánaða hefur komið í veg fyrir skjóta og skilvirka ákvarðanatöku og hefur staðið nauðsynlegu uppbyggingarstarfi fyrir þrifum segir í skoðun ráðsins. Þar er bent á að eins og þekkt er þá hafa talsverðar breytingar þegar orðið í þessum efnum þar sem ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum og ýmsir embættismenn horfið frá störfum. Til viðbótar hefur verið boðað til Alþingiskosninga nú í vor. Með þessu má gera ráð fyrir að öldur vantrausts og tortryggni lægi tímabundið en hér skiptir þó öllu að ekki sé tjaldað til einnar nætur. Nýta þarf tímann fram að kosningum til að leggja grunn að endurreisn hagkerfisins og fylgja þeirri vinnu eftir með markvissum hætti í kjölfar kosninga, hver sem niðurstaða þeirra verður. Sá grunnur verður ekki lagður nema þingheimur sameinist um aðgerðir sem miða að því að um starfsemi hins opinbera ríki víðtækt traust. Þetta traust verður að ríkja jafnt gagnvart sitjandi ríkisstjórn hverju sinni sem og öðrum fulltrúum hins opinbera, s.s. stjórnar Fjármálaeftirlitsins, stjórnar Seðlabankans, stjórnenda ríkisbankanna og annarra embættismanna. Á tímum sem þessum er því mikilvægt að huga að leiðum til að styrkja almennt traust til stjórnsýslu, óháð því hvar menn standa í pólitík. Stjórnvöld og embættismenn ættu að sýna gott fordæmi með því að láta flokkadrætti og pólitískan hégóma víkja fyrir þjóðarhagsmunum og leggja alla áherslu á að veita góðum og mikilvægum verkefnum brautargengi fram að kosningum. Skjótar aðgerðir í átt að endurreisn atvinnulífs, stöðugra atvinnustigi, bættum hag heimila, markvissri upplýsingagjöf og virku samstarfi við erlenda aðila eru stoðirnar sem endurvakið traust mun byggja á. Vinnubrögð þurfa að einkennast af heiðarleika, gagnsæi, upplýsingagjöf og samvinnu.