45% forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja áætla að skattabreytingar stjórnvalda muni leiða til fækkunar starfsfólks í fyrirtækjum þeirra. Þá telja um 50% fyrirtækja í verslun að breytingarnar muni leiða til fækkunar starfsfólks og í iðnaði er talan um 47%.

Þetta kemur fram í könnun um rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð en niðurstaða könnunarinnar verða birtar og útfærðar nánar í skýrslu um efnið sem kemur út samhliða Viðskiptaþingi.

Fram kemur á vef Viðskiptaráðs að ráðið hafi bent á nauðsyn þess að jafnvægi ríki á milli stærðar hins opinbera og einkageirans. Riðlist þetta jafnvægi sé erfitt að sjá hvaða tekjur eigi að standa undir rekstri hins opinbera til lengri tíma.

„Fram til þessa hefur aðlögun í kjölfar efnahagskreppunnar nánast eingöngu átt sér stað hjá hinum almenna vinnumarkaði,“ segir á vef Viðskiptaráðs.

„Þegar allt kemur til alls eru verkefni hins opinbera fjármögnuð af almenna vinnumarkaðnum og algjört grundvallaratriði að almennur vinnumarkaður hafi burði til að standa undir þeim.“

Þá segir að í skýrslu komandi Viðskiptaþings um ríkisfjármál kemur fram, svo ekki verður um villst, að umsvif hins opinbera hafi vaxið hröðum skrefum á undanförnum áratugum. Það sé því lykilatriði að langtímastefna stjórnvalda stefni að því að aðlögunin fari fram í ríkari mæli með hagræðingu í ríkisrekstri fremur en stöðugum skattahækkunum.

„Niðurstaða könnunar þingsins sýnir svo ekki verður um villst að skattahækkanir muni reynast skammgóður vermir í baráttunni við skuldavanda ríkissjóðs,“ segir á vef Viðskiptaráðs.