Það er ljóst að breikka þarf tekjugrunn hins opinbera og ekki getur talist raunhæft að brúa fjárlagagatið eingöngu með aðhaldi í ríkisrekstri – sér í lagi til skemmri tíma.

Engu að síður er forkastanlegt hvernig stjórnvöld hyggjast varpa stærstum hluta vandans á löskuð heimili og fyrirtæki í landinu.

Þetta kemur fram á vef Viðskiptaráðs en sem kunnugt er kynnti fjármálaráðherra í gær fjárlagafrumvarp fyrir árið 2010 þar sem meðal annars eru boðaðar miklar skattahækkanir.

„Nú hefur þegar átt sér stað veruleg aðlögun hjá heimilum og fyrirtækjum sem sést best á verulegum samdrætti í einkaneyslu, hruni í fjárfestingu einkaaðila, auknum gjaldþrotum fyrirtækja og lækkandi launum á almennum vinnumarkaði,“ segir á vef Viðskiptaráðs.

„Hið opinbera verður að taka þátt með sama hætti.“

Þá segir Viðskiptaráð að í ljósi þenslu í ríkisútgjöldum síðustu ár sé með öllu ótækt að jafn máttlítil skref séu stigin í átt til niðurskurðar og aðhalds og raun ber vitni í fjárlagafrumvarpinu. Þannig sé skattpíning fyrirtækja og heimila, til að verja störf útgjöld og störf í opinbera geiranum í besta falli skammgóður vermir.

Sjá nánar á vef Viðskiptaráðs.