Í dag þriðjudaginn 2. september fundar Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, með Alistair Darling, fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands.

Samkvæmt tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu munu ráðherrarnir m.a. funda um stöðuna á fjármálamörkuðum og framtíðarhorfur í fjármálastarfsemi.

Fyrr um daginn heimsækir viðskiptaráðherra starfstöðvar íslensku bankanna í London og kynnir sér starfsemi þeirra.