Viðskiptaráðherra hefur óskað eftir því við stjórnvöld í Lúxemburg að þau veiti öllum þeim aðilum sem hafa með rannsókn á falli íslensku bankanna að gera og aðdraganda þess nauðsynlegan aðgang að gögnum sem því tengjast og geta verið að finna í dótturfélögum íslensku bankanna þar í landi.

Þetta á einnig við um íslensk skattayfirvöld.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu.

Þar kemur fram að í erindinu er bent á að vegna sérstakra aðstæðna á Íslandi sé það afar brýnt að aðgangur að öllum mikilvægum rannsóknargögnum sé greiður og hann bættur frá því sem nú er sé þess kostur.

Þá er lögð áhersla á að greiður aðgangur að rannsóknargögnum sé mikilvægur þegar kemur að sölu eigna úr dótturfélögum bankanna.

„Strandi aðgangur að gögnum á því að þetta eru fjármálafyrirtæki í lögsögu Lúxemburg er lögð þung áhersla á það í erindi viðskiptaráherra að stjórnvöld í Lúxemburg geri allt sem hægt er til að tryggja slíkan aðgang,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.