Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hefur sett á fót  nefnd sem fara á heildstætt yfir ákvæði laga um fjármálafyrirtæki með það að markmiði að lagaumhverfi sparisjóða verði þeim ekki hamlandi í ört vaxandi samkeppni á fjármálamarkaði. Þetta kemur  fram í tilkynningu í frá Viðskiptaráðuneytinu.

"Mikil gerjun hefur verið hin síðari ár á íslenskum fjármálamarkaði. Hafa sparisjóðirnir ekki farið varhluta af þessum hræringum. Árið 2002 var ráðist í miklar breytingar á lagaumhverfi sparisjóðanna þegar samþykktar voru breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem gerðu sparisjóðum kleift að breyta félagaformi sínu í hlutafélög. Til dagsins í dag hefur enginn sparisjóður valið þessa leið fyrir utan Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, sem hefur samþykkt á stofnfjáreigendafundi stofnun hlutafélags um starfsemi sjóðsins," segir í tilkynningu.

Þá segir í tilkynningunni að nokkur umræða hafi átt sér stað um að ákvæði gildandi laga um starfsemi sparisjóðanna hafi ekki virkað sem skyldi, meðal annars þau sem heimila breytingu sparisjóðs í hlutafélag, viðskipti með stofnfjárhluti og útgáfu nýs stofnfjár.


Viðskiptaráðherra hefur óskað eftir að Fjármálaeftirlitið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samband íslenskra sparisjóða og Samtök fjármálafyrirtækja taki þátt í nefndarstarfinu með sérfræðingum viðskiptaráðuneytisins. Formaður nefndarinnar verður Kjartan Gunnarsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu. Aðrir nefndarmenn skipaðir án tilnefningar verða Tanya Zharov, lögfræðingur hjá Íslenskri Erfðagreiningu, og Jóhann Antonsson, stjórnarformaður Sparisjóðs Svarfdæla. Er við það miðað að nefndin ljúki störfum fyrir 1. júní á næsta ári.