Viðskipti á skuldabréfamarkaði fóru hratt af stað við opnun markaðar í morgun en alls hafa átt sér stað viðskipti fyrir rúma sex milljarða króna, segir greiningardeild Glitnis.

Í ljósi verri verðbólguhorfa telur greiningardeildin að ávöxtunarkrafa verðtryggðra bréfa komi til með lækka á næstunni. Fjárfestar eru í einhverju mæli að færa sig úr óverðtryggðum bréfum í verðtryggð bréf.

Viðbrögð á markaðinum bera með sér að fjárfestar hafi búist við minni hækkun stýrivaxta en ávöxtunarkrafa RIKB10 hefur hækkað um 35 punkta og RIKB13 um 25 punkta.

Minni breyting er á verðtryggða ferlinum eða 1-2 punkta hækkun. Búast hefði mátt við því að ávöxtunarkrafa á styttri enda ferilsins myndi hækka eitthvað, segir greiningardeildin.

Í því samhengi verður að líta til þess að ávöxtunarkrafa HFF14 hækkaði um 10 punkta í gær.

Í verðbólguspá greiningardeildar Glitnis sem birt var 24. mars síðastliðinn er spáð 0,8% hækkun vísitölu neysluverðs á milli mánaða og 1,8% hækkun til þriggja mánaða.

Það er mat greiningardeildar að vaxtahækkunin í morgun slái lítið á verðbólgu næstu mánaða vegna gengislækkunar krónunnar undanfarið. Í ljósi verri verðbólguhorfa teljum við að ávöxtunarkrafa verðtryggðra bréfa komi til með lækka eitthvað á næstunni.