Mikil velta er með bréf í Landsbankanum í upphafi dags.

Við opnun markaða í morgun fóru fram stök viðskipti með bréf í félaginu fyrir um 4,5 milljarða króna. Þar er um að ræða 210 þúsund hluti á genginu 21,5.

Þá fóru fram utanþingsviðskipti fyrir rúman 1,1 milljarð. Þar er um að ræða 53 þúsund hluti og einnig á genginu 21,5.

Heildarvelta með bréf í Landsbankanum er um 6,4 milljarðar en félagið hefur lækkað um 0,2% í morgun og er gengi þess nú, kl. 10:30, 21,45 á hvern hlut.