Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að heimila á ný viðskipti með fjármálagerninga Exista hf. og Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka hf. á skipulegum verðbréfamarkaði, frá og með morgundeginum 9. desember.

Þetta kemur fram á vef FME.

Umræddir fjármálagerningar voru teknir tímabundið úr viðskiptum þann 6. október sl., í því skyni að vernda fjárfesta og eðlilega starfsemi markaðarins, vegna óvenjulegs ástands á fjármálamörkuðum.