Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir viðsnúningi hjá 365 á öðrum ársfjórðungi, í kjölfar talsverðrar niðurgreiðslu lána, endurfjáfmögnun og hagræðingu í rekstri.

"Félagið hefur selt 30,7% eignarhlut sinn í Hands Holding á bókfærðu verði (1,6 milljarðar króna) og notað bróðurpartinn til niðurgreiðslu skulda. Við spáum þriggja milljarða króna tekjum hjá félaginu á fjórðungnum og 171 milljón krónu hagnaði," segir Greiningardeildin.