Viðsnúningur hefur orðið á þróun skuldatryggingaálags bankanna en álagið fjarlægist nú óðfluga þann sögulega hátind sem álagið náði undir lok síðasta mánaðar.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Álag á skuldatryggingar Kaupþings til 5 ára stendur nú í 710 punktum sem er 340 punktum minna en um síðustu mánaðamót þegar álagið náði hápunkti í 1.050 punktum.

Álagið á sambærilegar skuldatryggingar Glitnis hefur lækkað um 280 punkta frá því sem mest var og er nú 720 punktar og álag Landsbankans hefur lækkað um 400 punkta frá því í lok mars þegar álag á 5 ára skuldatryggingar Landsbankans náði hápunkti í 800 punktum, segir í Morgunkorni.

Áhlaupið á enda

„Mikla hækkun skuldatryggingaálags íslensku bankanna undanfarna mánuði má líklegast rekja að verulegu leyti til þess áhlaups sem talið er að gert hafi verið á íslenska hagkerfið af erlendum fjárfestum og vogunarsjóðum, og Fjármálaeftirlitið hefur nú til athugunar,“ segir Greining Glitnis.

Þá segir að þannig hafi vogunarsjóðir og fjárfestar keypt skuldatryggingar íslensku bankanna og skuldatryggingar banka í löndum þar sem líkur þykja á efnahaglegum skelli í náinni framtíð í þeim tilgagni að hagnast á fjármálaóstöðugleika.

„Ólíklegt er að sú verði raunin og því má búast við að ýmsa þeirra sem keypt hafa skuldatryggingar í þessum tilgangi þrjóti örendið eins og við höfum áður bent á. Í kjölfarið ætti skuldatryggingaálag bankanna að færast nær því sem raunveruleg staða þeirra gefur til kynna.

Sá viðsnúningur sem nú hefur orðið bendir til þess að sú þróun sé þegar hafin og búast má við frekari leiðréttingu í þessa átt á næstu mánuðum. Það hjálpar einnig til að áhættufælni hefur heldur verið í rénun síðustu daga á heimsvísu, og hafa vísitölur sem mæla skuldatryggingaálag stærri fyrirtækja í Evrópu til að mynda lækkað talsvert það sem af er viku,“ segir í Morgunkorni.