Hagnaður Icebank á öðrum ársfjórðungi nemur 560 milljónum króna en tap bankans á fyrsta ársfjórðungi var um 3,3 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallarinnar vegna uppgjörs bankans á öðrum ársfjórðungi.

Þrátt fyrir þennan bata er afkoma bankans fyrri hluta 2008 enn neikvæð um tæplega 2.800 milljónir króna samanborið við 4.198 milljóna króna hagnað á sama tímabili 2007.

Samkvæmt tilkynningunni munar mestu um mikinn viðsnúning á gengishagnaði milli ársfjórðunga. Hann varð jákvæður um 513 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi en var neikvæður um 2.117 milljónir króna á þeim fyrsta. Stafar þetta fyrst og fremst af því að talsvert hefur verið dregið úr hlutabréfaeign bankans.

Hreinar þóknanatekjur jukust einnig milli ársfjórðunga, úr því að vera neikvæðar um tæpar 6 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi í það að verða jákvæðar um tæplega 155 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi.

„Þennan viðsnúning má einkum rekja til aukinna umsvifa á gjaldeyrismarkaði og vaxandi umsvifa fyrirtækjaráðgjafar, nýs tekjusviðs sem hóf starfsemi í upphafi ársins,“ segir í tilkynningunni.

„Grunnrekstur bankans er áfram mjög öflugur og hafa hreinar vaxtatekjur á fyrri hluta ársins aldrei verið hærri eða 1.599 m.kr. Sem hlutfall af rekstrarkostnaði voru hreinar rekstrartekjur 174% sem þýðir að þær einar standa vel undir öllum rekstrarkostnaði bankans.“

Rekstrarkostnaður bankans lækkar um 100 milljónir króna á milli ársfjórðunga og nemur tæplega 920 milljónum króna á fyrstu 6 mánuðum ársins borið saman við 566 milljónir króna fyrir sama tímabil í fyrra. Veruleg fjölgun hefur orðið í starfsliði bankans milli ára eða úr 80 stöðugildum í lok fyrri hluta 2007 í 114 í lok sama tímabils í ár.

Í tilkynningunni kemur fram að vegna vaxandi umsvifa hefur annar rekstrarkostnaður, einkum upplýsingatæknikostnaður, hækkað umtalsvert.

Varúðarfærsla vegna virðisrýrnunar útlána nemur rúmlega 1.618 milljónir króna á ársfjórðungnum en var tæplega 2.280 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi. Nemur því heildar varúðarfærsla það sem af er þessu ári tæpum 3.900 milljónum króna.

Niðurstöðutala efnahagsreiknings var 289 milljónir króna í lok júní og hækkar frá áramótum um tæp 15%. Stafar það annars vegar af auknum umsvifum á millibankamarkaði og hins vegar af breytingum á gengi íslensku krónunnar en verulegur hluti lánasafns bankans er í erlendri mynt, svo sem lán til sparisjóða.

Eigið fé hækkar milli ársfjórðunga og nemur tæplega 10,8 milljörðum króna.

Eiginfjárhlutfall bankans á CAD grunni er nú 10,85% en var 9,1% í lok fyrsta ársfjórðungs.

Erfiðar aðstæður

„Í ljósi erfiðra ytri aðstæðna er ég ánægður með hversu vel rekstur bankans gengur;“ segir Agnar Hansson, bankastjóri Icebank í tilkynningunni.

„Viðsnúningur milli ársfjórðunga sýnir það glöggt, þó vissulega hafi varúðarniðurfærslur krafna sett strik í reikninginn. Hreinar vaxtatekjur á öðrum ársfjórðungi voru nánast tvöfalt hærri en rekstrarkostnaður bankans og á fyrri helmingi ársins voru hreinar vaxtatekjur hærri en nokkru sinni fyrr.“

Agnar segir að grunnrekstur bankans standi þannig styrkum fótum og eigið fé hækkar á milli ársfjórðunga.

„Annar ársfjórðungur var dágóður og þriðji ársfjórðungur hefur farið vel af stað. Því horfi ég björtum augum til framtíðar,“ segir Agnar