Tæplega 60% forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja telja hagsmunum íslensks viðskiptalífs betur borgið utan Evrópusambandsins. Þó viðhorf séu skipt eftir atvinnugreinum, þá taldi einungis 31% aðspurðra að íslensku viðskiptalífi væri betur borgið innan ESB.

Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð. Verður þessi niðurstaða sem og viðhorf forsvarsmanna fyrirtækja til annarra áhrifaþátta í rekstrarumhverfi fyrirtækja til umfjöllunar á Viðskiptaþingi á morgun.

Samkvæmt Viðskiptaráði er þessi afstaða gegn aðild að Evrópusambandinu á skjön við könnun sem Viðskiptaráð framkvæmdi fyrir ári síðan í tengslum við Viðskiptaþingið 2009. Í þeirri könnun var meirihluti hlynntur umsókn um aðild að Evrópusambandinu og taldi hana hafa jákvæð áhrif á stöðu efnahagsmála. Því má segja að veruleg breyting hafi orðið í viðhorfi íslenskra atvinnurekenda í garð ESB undanfarna 12 mánuði að mati Viðskiptaráðs. Tölur frá fyrri könnun fylgja ekki með.

51% vilja annan gjaldmiðil

Í könnun Capacent Gallup vegna Viðskiptaþings 2010 var jafnframt spurt um viðhorf atvinnurekenda til krónunnar og kvað þar við nokkuð annan tón heldur en í viðhorfum til Evrópusambandsins. Þannig töldu forsvarsmenn um 51% fyrirtækja að viðskiptalífinu væri betur borgið með annan gjaldmiðil, en 37% aðspurðra töldu heillavænlegast að halda sig við krónuna. "Ef niðurstöður þessara tveggja spurninga eru bornar saman kemur í ljós að 90% fyrirtækja sem telja viðskiptalífinu mikið betur borgið innan ESB telja því að sama skapi betur borgið með annan gjaldmiðil. Þá töldu u.þ.b. 69% fyrirtækja, sem telja viðskiptalífinu mikið betur borgið utan ESB, hagsmunum þess betur varið með krónuna. Þessar niðurstöður gefa annars vegar til kynna að atvinnurekendur sem horfa til kosta Evrópusambandsins eru að miklu leyti að horfa til upptöku evrunnar og hins vegar að krónan sé ráðandi þáttur þess að fyrirtæki telji sér betur borgið utan ESB," segir í frétt Viðskiptaráðs.