Hlutabréf hækkuðu um stund í Kauphöllinni og hafði Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkað um 0,3% eftir að hafa lækkað um 1,1% um hádegi.

Nú, kl. 14:10 stendur Úrvalsvísitalan í stað og er 5.193 stig.

Glitnir [ GLB ] og Exista [ EXISTA ] hafa hækkað mest félaga eða um 0,6%.

Eimskipafélag Íslands [ HFEIM ] hefur lækkað mest félaga eða um 5%. Þá hefur Bakkavör [ BAKK ] lækkað um 1,7% og Alfesca [ A ] um 1,5%.