Fjármálaráðherra hafði fyrir yfirtöku íslenska ríkisins á Landsbanka Íslands, ekki vitneskju um tilboð breska fjármálaeftirlitsins (FSA) um að gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu væri FSA tilbúið að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu.

Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Svarinu hefur verið dreift á Alþingi.

Siv spyr einnig:

Í hvað er ráðherra að vísa með eftirfarandi tilsvari í símtali við Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta:

Darling: „Ég tek því þá sem svo að loforðið sem Landsbankinn gaf okkur um að hann fengi 200 milljónir punda í reiðufé sé einnig fyrir bí?“

Ráðherra: „Já, þeir fengu ekki það fé.“?

Óskað er eftir því að ráðherra birti í svarinu minnisblöð sem tengjast þessu tilsvari.

Svar ráðherrans er svohljóðandi: Fjármálaráðherra taldi að fjármálaráðherra Breta væri að vísa til fyrirgreiðslu sem Landsbankinn hefði farið fram á í Seðlabanka Íslands en ekki fengið. Ráðherra hefur engin minnisblöð um það mál."

Hér er svarið í heild .