Hægt er að sjá viðtal við Ágúst Guðmundsson, forstjóra Bakkavarar, á vefvarpi vb.is
Ágúst segist þar vera þokkalega sáttur við uppgjör annars ársfjórðungs. Ástæða taps á fjórðungnum segir hann að megi rekja til fjárfestinga í Greencore.
Hann segist ekki hafa orðið var við minnkandi eftirspurn en neytendur kaupi nú frekar ódýrari vörur. Bakkavör hyggist þó sameina verksmiðjur og bæta nýtingu á næstu fjórðungum.
Sigríður Mogensen, blaðamaður Viðskiptablaðsins, tók viðtalið.