Eignir lífeyrissjóðanna námu um 896 milljörðum króna í júnílok á þessu ári og höfðu aukist um 10,8% frá áramótum. Í fyrra nam aukningin 21,4%, sem samsvarar 18,2% raunaukningu miðað við vísitölu neysluverðs.

Þessar upplýsingar koma fram í gögnum Seðlabanka Íslands, en þar er einnig greint frá því að að erlendar eignir lífeyrissjóðanna hafi numið um 189 milljörðum króna í júnílok, sem er um 21,15% af heildareignum sjóðanna. Sambærilegt hlutfall erlendra eigna nam um 19% í árslok 2003.

Af eignaflokkum lífeyrissjóðanna er mest aukningin í markaðsverðbréfum fjárfestingasjóða, um 25 milljarðar króna, í hlutabréfasjóðum 22 milljarðar króna og í hlutabréfum 25 milljarðar króna. Sjóðfélagalán námu alls um 94 milljörðum króna í júnílok eða um 10,5% af heildareignum sjóðanna og höfðu aukist um 3,8% á fyrstu 6 mánuðum ársins. Tölur Seðlabankans byggja á áætlun 25 stærstu lífeyrissjóðanna.