Útflutningsráð vinnur nú að undirbúningi ferða viðskiptasendinefnda í haust og vetur. Næst verður haldið til Vladivostok síðla í ágúst, en síðan til Kamtsjatka í september og til San Francisco og Úkraínu í október.

Þá mun ráðið að öllum líkindum taka þátt í að skipuleggja ferðir viðskiptasendinefnda til Leeds, Manchester og Edinborgar í haust og vetur.