Væntingavísitala Gallup hækkaði um tæplega 3 stig í ágúst frá fyrri mánuði. Hún stendur nú í 69,9 stigum og er það hæsta gildi hennar frá því fyrir hrun. Frá bankahruni hefur vísitalan mælst að meðaltali um 40 stig og segir Greining Glitnis að augljóslega sé mun bjartara yfir landanum nú en undanfarin misseri. Það komi ekki á óvart enda bendi margt til þess að botninum sé náð. Undanfarið hafi staða vinnumarkaðarins færst til betri vegar, verðbólga hjaðnað, krónan styrkst, vextir lækkað og kaupmáttur launa aukist.

Væntingarvísitalan mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins. Þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir en gildi hennar er frá 0-200.

„Af undirvísitölum Væntingavísitölunnar hækkar mat á atvinnuástandi mest milli mánaða, eða um ríflega 8 stig, og mælist nú 73,8 stig. Á hinn bóginn lækkar mat á efnahagsástandinu um tæp 3 stig milli mánaða og mælist 69,7 stig. Ljóst er að neytendur telja að ástandið verði nokkuð betra eftir 6 mánuði en það er nú.

Þannig hækkar mat á núverandi ástandi um tæp 2 stig frá fyrri mánuði og mælist nú 16,2 stig en væntingar til ástandsins eftir 6 mánuði hækka um tæp 4 stig og mælast nú 105,8 stig og er það annar mánuðinn í röð sem væntingarnar mælast yfir 100 stigum.

Hefur landinn ekki verið jafn bjartsýnn á framtíðina síðan í október 2007 og er ljóst að lund hans er enn fyrst og fremst bundin framtíðinni enda er gildi vísitölunnar fyrir mat á núverandi ástandi enn verulega lágt, “ segir í morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. ??