Hlutabréf lækkuðu nokkuð í Asíu í dag en að sögn Bloomberg fréttaveitunnar hafa fjárfestar miklar áhyggjur af uppgjörum félaga en talið er að hagnaður ýmissa atvinnugeira muni dragast verulega saman á þessum ársfjórðungi.

MSCI Kyrrahafsvísitalna lækkaði um 4,8% í dag en hafði hækkað síðustu tvo daga.

Vísitalan hefur engu að síður lækkað um 44% það sem af er ári og að sögn Bloomberg er markaðsvirði fyrirtækja í Asíu hlutfallslega minna en í Evrópu og Bandaríkjunum og hlutabréf því ódýrari nú.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 6,8%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 6% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 3%.

Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 5,7%, í Suður Kóreu lækkaði Kospi vísitalan um 5,1% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 3,4%.