Væntingavísitalan mælist nú 82,7 stig og lækkar um 14,5% frá fyrri mánuði. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð þar sem vísitalan mælist undir 100 stigum sem þýðir að fleiri neytendur séu svartsýnir en bjartsýnir.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis en þar kemur fram að vísitalan hefur ekki verið lægri síðan árið 2001.

Væntingar neytenda hafa dregist saman frá því í haust og er vísitalan nú 46,6% lægri en á sama tíma fyrir ári síðan.

„Þegar umrót undanfarinna mánaða á fjármálamörkuðum og vaxandi svartsýni í hagkerfinu er höfð til hliðsjónar kemur þessi þróun ekki á óvart. Þá hefur neikvæð umræða á undanförnum mánuðum og dekkri spár um horfur í íslensku hagkerfi og fjármálalífi haft áhrif á væntingar neytenda,“ segir Greining Glitnis í Morgunkorni sínu.

Heimilin bregðast við breyttum aðstæðum

Allar undirvísitölur í væntingavísitölunni lækka frá fyrri mánuði og allar mælast þær nú undir 100 stigum. Mat á núverandi ástandi hefur ekki verið verra síðan vorið 2003 og þá hefur mat á atvinnuástandinu ekki mælst lægra síðan í júní 2004.

Mat á efnahagslífinu sem og væntingar til ástandsins að 6 mánuðum liðnum mælast einnig afar lágar og hafa farið lækkandi undanfarna mánuði.

Greining Glitnis segir að mælingar væntingavísitölunnar undanfarna mánuði benda til þess að heimilin séu að bregðast við breyttu efnahagsumhverfi og að nú hægi á vexti einkaneyslu, en hún hefur aukist afar hratt á undanförnum árum.