Fjarskipti hf., móðurfélag Vodafone, og 365 miðlar hf. hafa undirritað samkomulag um einkaviðræður og helstu forsendur og skilmála kaupsamnings varðandi möguleg kaup á eignum og rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu 365 miðla hf. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Fjarskipti voru að senda frá sér. Þar segir að kaupin séu háð ýmsum forsendum og fyrirvörum. Þá kemur fram að Fréttablaðið og vísir.is verði ekki með í kaupunum.

„Undir ljósvakamiðla 365 miðla hf. falla bæði sjónvarps- og útvarpsrekstur félagsins," segir í tilkynningunni. „Helstu sjónvarpsstöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórásin og á útvarpssviðinu eru það meðal annars Bylgjan, FM957 og X-ið. Á fjarskiptamarkaði hafa 365 miðlar 3,4% markaðshlutdeild á farsímamarkaði og 12,6% á internetmarkaði samkvæmt nýjustu tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar. Gangi viðskiptin eftir verður til öflugt fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi, sem mun bjóða upp á fjölbreytt vöruframboð og enn betri þjónustu,  með um 23 milljarða króna veltu á ári.

Forsendur um kaupverð eru grundvallaðar á upplýsingum seljanda og þeim forsendum að rekstrarhagnaður hins keypta fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA), að viðbættum samlegðaráhrifum, geti numið allt að 2 milljörðum króna á ársgrundvelli. Kaupverð, miðað við framangreindar forsendur væri allt að 3,4 milljarðar króna; greitt með 1,7 milljörðum króna í reiðufé annars vegar og 32.380.952 hlutum í Fjarskiptum hf. hins vegar, auk yfirtöku vaxtaberandi skulda að fjárhæð 4,6 milljarðar króna. Við útreikning á fjölda hluta er miðað við gengið 52,5 kr. á hlut sem fæli í sér 16,7% álag á dagslokagengi Fjarskipta hf. þann 30. ágúst 2016. Þar sem viðskiptin myndu fela í sér kaup á ákveðnum eignum og rekstri tækju Fjarskipti hf. m.a. ekki yfir mögulega áhættu í tengslum við skattaleg málefni né leiguskuldbindingar 365 miðla hf. Eignir 365 miðla hf. sem undanskildar eru í viðskiptunum samkvæmt samkomulaginu eru Fréttablaðið og visir.is. 365 miðlar hf. munu halda áfram rekstri fréttastofu og verður samið um miðlun efnis milli aðila eftir því sem við á.

Þar sem aðilar eru samkeppnisaðilar á markaði hefur kaupandi enn sem komið er haft aðgang að takmörkuðum upplýsingum um hið selda. Samkomulag þetta er því háð ýmsum forsendum og skilyrðum, þar á meðal að metinn rekstrarhagnaður og horfur í rekstri byggi á forsendum sem eru ásættanlegar að mati kaupanda eftir framkvæmd áreiðanleikakönnunar, auk samþykkis Samkeppniseftirlitsins og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila. Nánar verður gert grein fyrir viðskiptunum ef endanlegur kaupsamningur kemst á eða ef viðræður aðila falla niður. Gangi viðskiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði endanlega frá kaupunum á fyrri hluta ársins 2017."