Samkvæmt ákvörðun Neytendastofu er Vodafone bannað að kynna þjónustupakka sína sem tilboð ef pakkarnir eru í boði lengur en í sex vikur.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu sem hefur tekið ákvörðun vegna kvörtunar Símans yfir því orðalagi Vodafone að kalla þjónustupakka fyrir fyrirframgreidda farsímaþjónustu tilboð.

Neytendastofa segir að í eðli sínu hafi tilboð mjög takmarkaðan gildistíma og í reglum um útsölur og tilboð er sérstaklega fjallað um að slík sala geti ekki varað lengur en í sex vikur.

Í ákvörðuninni er einnig fjallað um að Vodafone hafi þó ekki brotið gegn ákvæðum laga og reglna um að ekki megi blekkja neytendur með boðum um lægra verð. Verð fyrir þjónustuna í þjónustupökkunum sé ávallt lægra en sé þjónustan keypt í stykkjatali.

Sjá nánar á vef Neytendastofu.