Fjarskipti hf. (Vodafone) hafa gert samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins, skráðum á aðalmarkaði Kauphallar Íslands. Samningurinn tekur gildi í dag og kemur í stað eldri samnings milli sömu aðila, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallar.

Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf í Fjarskiptum hf. í kauphöllinni í því skyni að seljanleiki hlutabréfanna aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Íslandsbanki skal dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf í Fjarskiptum hf. í viðskiptakerfi kauphallarinnar, að lágmarki kr. 400.000 að nafnvirði á gengi sem Íslandsbanki ákveður hverju sinni. Sé gengið að tilboði Íslandsbanka skal bankinn leggja fram nýtt tilboð eins fljótt og mögulegt er þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag er náð. Hámarksmagn viðskipta dag hvern sem Íslandsbanki er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera 3.000.000 hlutir.

Þá hafa Fjarskipti hf. einnig gert samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Samningurinn tekur gildi þann 1.september næstkomandi. Samningurinn kemur í stað eldri samnings sömu aðila.

Landsbankinn mun daglega setja fram kaup- og sölutilboð í hlutafé Fjarskipta, að lágmarki kr. 400.000 að nafnvirði á gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi er 2.400.000 hlutir.