Gengi hlutabréfa í Fjarskiptum, móðurfélagi Vodafone, hefur hækkað ríflega í viðskiptum dagsins í Kauphöll Nasdaq Iceland, eða um 4,39% í 445 milljón króna viðskiptum það sem af er degi.

Samkvæmt heimildarmönnum Viðskiptablaðsins á markaði er það vegna nýs virðismats Arion banka á félaginu. Þar sem viðmiðunargengi er töluvert yfir markaðsgengi félagsins.