Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,23% í 3.148 milljón króna viðskiptum dagsins. Stendur vísitalan nú í 1.737,56 stigum við lok viðskipta.

Aðalvísitala skuldabréfa stendur nú í 1250,42 stigum en hún stóð í stað í tæplega 2.641 milljóna viðskiptum í dag.

Icelandair niður um 2,14%

Af Úrvalsvísitölufélögunum hækkaði gengi bréfa Símans mest eða um 2,29% í 410 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa Eimskipafélags Íslands um 1,79% í 251 milljón króna viðskiptum.

Mest lækkaði hins vegar gengi bréfa Icelandair Group eða um 2,14% í 360,7 milljón króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa Marel um 0,73% í 108,6 milljón króna viðskiptum.

Mest hækkun var á gengi bréfa Vodafone, en það hækkaði alls um 4,68% í 609,7 milljón króna viðskiptum.