Forstjóri breska farsímafyrirtækisins Vodafone Group, Arun Sarin, tilkynnti í dag að fyrirtækið hafi hafið áreiðanleikakönnun vegna fyrirhugaðra kaupa 67% hlutar í indverska farsímfyrirtækinu Hutchinson, segir í frétt Dow Jones.

Sarin segist eiga von á því að áreiðanleikakönnuninni verði lokið eftir hálfan mánuð.

Hutchinson er fjórða stærsta farsímafyrirtæki landsins, en miklir vaxtamöguleikar eru taldir vera á Indlandsmarkaði um þessar mundir.